Landsvirkjun eignast meirihluta
í Þeistareykjum
Norðurorka, hefur fyrir milligöngu Saga Capital Fjárfestingarbanka, gert samning um sölu á 32% hlut sínum í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. til Landsvirkjunar.
Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í Þeistareykjum en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit. Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 milljónir dollara að aflokinni áreiðanleikakönnun og 11 milljónir dollara til viðbótar þegar orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja, þó ekki fyrr en að tíu árum liðnum. Skrifað var undir samninginn í dag en það var fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital sem hafði milligöngu um viðskiptin sem ráðgjafi og fulltrúi Norðurorku.
Þeistareykir hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.