Mæðrastyrksnefnd hlýtur
jólastyrk Saga Capital
Starfsfólk Saga Capital óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samskiptin á árinu sem er að líða. Í stað þess að senda út hefðbundin jólakort styrkir Saga Capital Mæðrastyrksnefnd.
Þetta eru aðrar hátíðirnar í röð sem Saga Capital sendir hvorki út jólakort né kaupir auglýsingar í
fjölmiðlum en styrkir þess í stað starf Mæðrastyrksnefndar. Mæðrastyrksnefnd aðstoðar þá sem minna mega sín í
íslensku samfélagi, s.s. einstæða foreldra, fjölskyldur í fjárhagsvandræðum, öryrkja og eldri borgara.
Við, starfsmenn Saga Capital, tilnefndum málefni og kusum svo leynilega á milli þeirra til að ákvarða, hvaða félag ætti að hljóta
jólastyrkinn í ár. Mæðrastyrksnefnd hlaut yfirburðakosningu, enda hefur starf nefndarinnar sjaldan verið eins mikilvægt og nú.
Við viljum hvetja alla þá, sem eru aflögufærir um þessi jól, að láta gott af sér leiða og styrkja góð
málefni.