Saga Capital Fjárfestingarbanki hf. var stofnaður haustið 2006 og er óskráð hlutafélag sem hefur það að markmiði að veita hluthöfum sínum framúrskarandi ávöxtun með virkri stýringu og áhættumati yfir lengra tímabil.
Saga Capital leggur ríka áherslu á góð tengsl við fjárfesta og virkt hluthafalýðræði. Bankinn hefur það að markmiði að hluthafar fái skýrar og greinargóðar upplýsingar um starfsemina og reksturinn.
Saga Capital starfar samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.