Skilyrði viðskipta á Saga Market:
2. Viðskiptamaður þarf að sýna fram á að hann búi yfir nægjanlegri þekkingu og reynslu til að meta áhættu sem felst í fjárfestingu í óskráðum verðbréfum. Enn fremur þarf hann að vera það fjárhagslega sterkur að hann sé hæfur til að eiga viðskipti með óskráð verðbréf. Fjárfestar þurfa að sýna fram á hæfi sitt með fullnægjandi gögnum þar að lútandi.
3. Stofnfjáreigendur sem óska eftir að selja hluti sína í sparisjóði geta verið undanþegnir framangreindum skilyrðum.
4. Allir viðskiptamenn þurfa að:
a. Undirrita Almenna skilmála markaðsviðskipta Saga Capital áður en þeir geta óskað eftir framlagningu tilboðs á
Saga Market.
b. Fylla út og skila viðeigandi gögnum vegna peningaþvættiseyðublaðs.
c. Undirrita yfirlýsingu vegna fjárfestingar í óskráðum fjármálagerningum.
5. Lágmarksfjárhæð í viðskiptum með hluti í Saga Capital Fjárfestingarbanka hf. er ISK 5.000.000 en engin lágmarksfjárhæð
er í viðskiptum með stofnfjárbréf.b. Fylla út og skila viðeigandi gögnum vegna peningaþvættiseyðublaðs.
c. Undirrita yfirlýsingu vegna fjárfestingar í óskráðum fjármálagerningum.
6. Þóknun vegna kaupa og sölu er 1,5% af markaðsverði.
Saga Capital mun eftir fremsta megni aðstoða fjárfesta við að afla upplýsinga um rekstur og eignir útgefenda viðkomandi fjármálagerninga en á engan hátt verður um skipulega upplýsingagjöf að ræða og ber bankinn enga ábyrgð á að leggja fram eða afla slíkra upplýsinga, hvorki þegar tilboð er lagt fram né heldur eftir að fjárfesting er gerð.
Tilgangur Saga Market er eingöngu að miðla upplýsingum og tilboðum á milli fjárfesta. Saga Capital veitir ekki ráðgjöf um viðskipti á Saga Market og eru fjárfestar hvattir til að leita sér utanaðkomandi ráðgjafar vegna fjárfestingar í þeim fjármálagerningum sem miðlað er á Saga Market.