Saga Capital telur mjög mikilvægt að regluvarsla bankans sé af hæstu gæðakröfum á hverjum tíma. Þar á meðal leggur bankinn
áherslu á þekkingu og sjálfstæði regluvarðar bankans í því sjónarmiði að stuðla að heilbrigðum og
trúverðugum rekstri og þjónustu Saga Capital. Regluvörður Saga Capital er tilnefndur af stjórn bankans og er undir eftirliti innri endurskoðanda bankans og
skilar reglulega skýrslum til stjórnar bankans um störf sín.
Regluvörður hefur eftirlit með að starfsemi bankans sé í samræmi við framangreindar reglur og gildandi lög á hverjum tíma.
Bankinn hefur sett sér eftirfarandi reglur þar að lútandi:
Verklagsreglur um eigin viðskipti
Hafa það að markmiði að stuðla að óhlutdrægni gagnvart og jafnræði milli viðskiptavina í starfsemi bankans, koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhæði starfsmanna og trúnað og trúverðugleika vegna viðskipta Saga Capital fyrir eigin reikning.
Starfsreglur stjórnar
Er ætlað að tryggja jafnræði við meðferð mála fyrir stjórn, vandaða og óháða málsmeðferð og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi bankans. Í því skyni er starfsreglum stjórnar bankans ætlað að styrkja umgjörð um viðskipti stjórnarmanna og félaga þeim tengdum við Saga Capital og aðgang stjórnarmanna að upplýsingum um viðskiptamenn.
Reglur Saga Capital um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Hafa það markmið að hindra að rekstur og starfsemi bankans verði notuð til að þvætta fjármuni eða til að fjármagna hryðjuverkastarfsemi og með reglunum leitast Saga Capital við að uppfylla í hvívetna ítrustu kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja á innlendum og alþjóðlegum vettvangi um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Stefna Saga Capital um hagsmunaárekstra
Er ætlað er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, annars vegar á milli bankans og viðskiptavina hans og hins vegar á milli viðskiptavina bankans innbyrðis, einkum á sviði verðbréfaviðskipta.
Regluvörður hefur eftirlit með að framangreindum reglum sé fylgt í starfsemi bankans og hefur forgöngu um túlkun á reglunum. Hann sér um
kynningu og endurmenntun gagnvart starfsmönnum og reglulegri endurskoðun reglnanna.Hafa það að markmiði að stuðla að óhlutdrægni gagnvart og jafnræði milli viðskiptavina í starfsemi bankans, koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhæði starfsmanna og trúnað og trúverðugleika vegna viðskipta Saga Capital fyrir eigin reikning.
Starfsreglur stjórnar
Er ætlað að tryggja jafnræði við meðferð mála fyrir stjórn, vandaða og óháða málsmeðferð og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra í starfsemi bankans. Í því skyni er starfsreglum stjórnar bankans ætlað að styrkja umgjörð um viðskipti stjórnarmanna og félaga þeim tengdum við Saga Capital og aðgang stjórnarmanna að upplýsingum um viðskiptamenn.
Reglur Saga Capital um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Hafa það markmið að hindra að rekstur og starfsemi bankans verði notuð til að þvætta fjármuni eða til að fjármagna hryðjuverkastarfsemi og með reglunum leitast Saga Capital við að uppfylla í hvívetna ítrustu kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja á innlendum og alþjóðlegum vettvangi um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Stefna Saga Capital um hagsmunaárekstra
Er ætlað er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, annars vegar á milli bankans og viðskiptavina hans og hins vegar á milli viðskiptavina bankans innbyrðis, einkum á sviði verðbréfaviðskipta.
Hlutabréf Saga Capital eru ekki skráð á skipulegan verðbréfamarkað en engu að síður leggur bankinn mikið upp úr reglulegri og skýrri upplýsingagjöf til hluthafa sinna, markaðsaðila og eftirlitsaðila, meðal annars með fréttabréfum til hluthafa sinna og reglulegri skýrslugjöf til Fjármálaeftirlitsins lögum samkvæmt.
Regluvörður Saga Capital er Helga Hlín Hákonardóttir hdl., helga hjá sagacapital.is.