Saga Capital Fjárfestingarbanki hf.
Verklagsreglur um eigin viðskipti
1.1. Reglur þessar eru settar:
a) Samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr. 10, gr. reglugerðar nr. 995/2007 um fjárfestavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja, sbr. 2. tl. 1. mgr. 26. gr. laga um verðbréfaviðskipti.
b) Samkvæmt 56. og 57. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki varðandi þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri og viðskipti starfsmanna við fjármálafyrirtæki.
1.2. Markmið reglna þessara er að stuðla að óhlutdrægni gagnvart og jafnræði milli viðskiptavina í starfsemi Saga Capital Fjárfestingarbanka hf. (Saga Capital eða félagið), koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, tryggja óhæði, trúnað og trúverðugleika vegna viðskipta starfsmanna og Saga Capital fyrir eigin reikning.
1.3. Til að ná ofangreindum markmiðum er í reglum þessum fjallað um jafnræði viðskipavina hvað varðar upplýsingar, verð og önnur kjör, aðskilnað einstakra starfssviða Saga Capital, verðbréfaviðskipti starfsmanna, viðskipti Saga Capital fyrir eigin reikning, þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri og viðskipti starfsmanna við Saga Capital.
1.4. Reglur þessar skulu aðgengilegar viðskiptavinum Saga Capital og eru háðar staðfestingu Fjármálaeftirlitsins.
2. Gildissvið2.1. Reglur þessar gilda, eftir því sem við getur átt, um alla starfsmenn Saga Capital nema þeir séu sérstaklega undanþegnir gildissviði þeirra sbr. 2.2.
2.2. Reglurnar taka ekki til starfsmanna sem hafa ekki aðgang að trúnaðarupplýsingum, t.d. starfsmanna er sinna ræstingum. Þeir starfsmenn skulu þó undirrita trúnaðaryfirlýsingu.
2.3. Reglur þessar gilda ekki um stjórnarmenn og eigendur virkra eignarhluta, að frátöldum ákvæðum 2., 6., 8., 9. og 13. kafla sem gilda um slíka aðila eftir því sem við á.
2.4. Reglur þessar gilda einnig um maka (hjúskapur, sambúð, samvist) starfsmanna og ófjárráða einstaklinga sem eiga lögheimili á heimili þeirra. Þegar talað er um starfsmenn í reglum þessum gildir hið sama um þessa aðila nema annað sé tekið fram. Starfsmaður skal tilkynna regluverði ef maki hans starfar hjá öðru fjármálafyrirtæki og fellur undir verklagsreglur þess.
2.5. Reglur þessar gilda einnig um eignarhaldsfélög þeirra aðila sem þær taka til, sem og önnur félög þar sem þeir geta með beinum eða óbeinum hætti, tekið ákvörðun um viðskipti sem falla undir reglur þessar. Með eignarhaldsfélögum samkvæmt grein þessari er átt við félög sem eru eingöngu í eigu og undir stjórn aðila, eins eða fleiri, sem falla undir reglur þessar.
2.6. Reglur þessar taka til viðskipta með fjármálagerninga, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Þá taka þær einnig til viðskipta með gjaldmiðla eftir því sem við á. Reglurnar taka þó ekki til kaupa og sölu á gjaldeyri til greiðslu fyrir vörur eða þjónustu eða vegna ferðalaga erlendis og stundarviðskipti með gjaldeyri vegna greiðslu á skuldum í erlendum gjaldeyri.
3. Viðskiptahættir, óhlutdrægni og jafnræði
3.1. Saga Capital ber að starfa í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti og venjur á fjármálamarkaði, sbr. 19. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
3.2. Starfsmönnum Saga Capital ber ávallt að gæta fyllstu óhlutdrægni í störfum sínum. Þeir skulu gæta þess að viðskiptavinir Saga Capital njóti jafnræðis um upplýsingar í tengslum við tiltekin viðskipti að teknu tilliti til reglna um þagnarskyldu og eðli þeirra viðskipta sem um ræðir hverju sinni.
3.3. Þess skal gætt að viðskiptavinum séu veittar greinargóðar upplýsingar um þá þjónustu og kosti sem þeim stendur til boða, að teknu tilliti til reynslu, þekkingar og fjárhagsstöðu viðkomandi.
3.4. Þá skal þess sérstaklega gætt í verðbréfaviðskiptum sem reglur þessar ná til:
a) Að fyllsta trúverðugleika Saga Capital og starfsmanna félagsins sé gætt.
b) Að ítrustu hagsmuna viðskiptavina sé gætt.
c) Að fullur trúnaður ríki gagnvart viðskiptavinum.
d) Að viðskipti stangist ekki á við ákvæði laga og reglna um meðferð trúnaðarupplýsinga, viðskipti innherja og markaðsmisnotkun á hverjum tíma.
e) Að viðskiptin séu sérstaklega skráð.
f) Að regluvörður Saga Capital fái kerfisbundið upplýsingar um eigin viðskipti starfsmanna og staðfesti þau í samræmi við ákvæði reglna þessara.
g) Að stjórn fái upplýsingar um frávik sem kunna að verða frá ákvæðum reglna þessara.
4. Aðskilnaður starfssviða
4.1. Fyllstu óhlutdrægni skal gætt gagnvart viðskiptavinum Saga Capital og trúverðugleiki félagsins tryggður. Í því skyni skal komið í veg fyrir mögulega hagsmunaárekstra með aðskilnaði starfssviða eftir því sem nánar er kveðið á um í kafla þessum. Með aðskilnaði er átt við að sviðin séu aðskilin í stjórnun, afkomu, upplýsingakerfum og með reglum um samskipti milli sviða. Skal aðskilnaður vera á eftirfarandi hátt:
Eigin viðskipti skulu skilin frá fyrirtækjaráðgjöf, útlánasviði, verðbréfamiðlun og fjárstýringu í stjórnun, afkomu og upplýsingakerfum. Þess skal gætt að rekstrareiningar þessar séu aðgreindar innan sama húsrýmis og kveðið sé skýrt á um samskiptamáta starfsmanna þeirra í öryggis- og samskiptareglum sem nánar er fjallað um hér að neðan. Sviðið skal vera aðskilið í húsnæði með aðgangsstýringu frá framangreindum sviðum.
Fyrirtækjaráðgjöf skal skilið frá útlánasviði, verðbréfamiðlun, eigin viðskiptum og fjárstýringu í stjórnun, afkomu og upplýsingakerfum. Þess skal gætt að rekstrareiningar þessar séu aðgreindar innan sama húsrýmis og kveðið sé skýrt á um samskiptamáta starfsmanna þeirra í öryggis- og samskiptareglum sem nánar er fjallað um hér að neðan. Sviðið skal vera aðskilið í húsnæði með aðgangsstýringu frá framangreindum sviðum.
Útlánasvið skal skilið frá fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, eigin viðskiptum og fjárstýringu í stjórnun, afkomu og upplýsingakerfum. Þess skal gætt að rekstrareiningar þessar séu aðgreindar innan sama húsrýmis og kveðið sé skýrt á um samskiptamáta starfsmanna þeirra í öryggis- og samskiptareglum sem nánar er fjallað um hér að neðan. Sviðið skal vera aðskilið í húsnæði með aðgangsstýringu frá framangreindum sviðum.
Verðbréfamiðlun skal skilin frá fyrirtækjaráðgjöf, útlánasviði, eigin viðskiptum og fjárstýringu í stjórnun, afkomu og upplýsingakerfum. Þess skal gætt að rekstrareiningar þessar séu aðgreindar innan sama húsrýmis og kveðið sé skýrt á um samskiptamáta starfsmanna þeirra í öryggis- og samskiptareglum sem nánar er fjallað um hér að neðan. Sviðið skal vera aðskilið í húsnæði með aðgangsstýringu frá framangreindum sviðum.
Fjárstýring skal skilið frá fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, eigin viðskiptum og útlánasviði í stjórnun, afkomu og upplýsingakerfum. Þess skal gætt að rekstrareiningar þessar séu aðgreindar innan sama húsrýmis og kveðið sé skýrt á um samskiptamáta starfsmanna þeirra í öryggis- og samskiptareglum sem nánar er fjallað um hér að neðan. Sviðið skal vera aðskilið í húsnæði með aðgangsstýringu frá framangreindum sviðum.
4.2. Í samskiptum milli ofangreindra starfssviða sem aðgreind eru hvað varðar upplýsingaflæði skal þess gætt að viðkvæmar upplýsingar berist ekki á milli þeirra og starfsmenn skulu ekki veita upplýsingar um verkefni og gagnagrunna utan viðkomandi starfssviðs í samræmi við öryggis- og samskiptareglur Saga Capital.
4.3. Starfsmenn einstakra starfssviða skulu ekki starfa innan annarra starfssviða sem aðgreind eru hvað varðar upplýsingaflæði nema með leyfi regluvarðar. Regluvörður skal skrá upplýsingar um verkefni viðkomandi starfsmanns á öðru starfssviði, hvenær þau voru unnin og ástæður þeirra.
4.4. Á öllum samráðsfundum innan Saga Capital, skal þess gætt í hvívetna að ekki komi upp hagsmunaárekstrar og að reglur um meðferð trúnaðar- og innherjaupplýsinga séu virtar. Ef veittar eru innherjaupplýsingar um einstaka viðskiptamenn Saga Capital á samráðsfundum yfirstjórnenda sviða, skulu fundarmenn ekki taka ákvarðanir um eigin viðskipti Saga Capital með verðbréf útgefenda er slíkar innherjaupplýsingar ná til.
5. Öryggis- og samskiptareglur
5.1. Starfsmenn skulu fylgja eftirfarandi öryggis- og samskiptareglum í störfum sínum.
a) Starfsmönnum ber að virða og stuðla að eftirfylgni við ákvæði gildandi laga og reglna um meðferð innherjaupplýsinga og þagnarskyldu.
b) Trúnaðar- og innherjaupplýsingum skal haldið innan eins þröngs hóps og mögulegt er. Starfsmanni er aðeins leyfilegt að miðla slíkum upplýsingum að hann hafi til þess heimild (í ljósi stöðu sinnar eða heimildar frá yfirmanni er hefur slíka heimild) og viðtakanda séu upplýsingarnar nauðsynlegar vegna starfa eða stöðu sinnar eða ef lög kveða á um skyldu til að veita slíkar upplýsingar.
c) Gögn sem merkt eru sem trúnaðarmál skulu aðeins opnuð af þeim sem ljóst má vera að hafi heimild til aðgangs að slíkum gögnum. Leiki vafi á um slíkt skal yfirmanni viðkomandi sviðs aðeins heimilt að opna slík gögn til að ganga úr skugga um aðgangsheimild viðkomandi.
d) Starfsmenn skulu gæta þess að trúnaðar- og innherjaupplýsingar séu varðveittar gegn aðgangi og berist ekki óviðkomandi, þ.e. þeim sem þurfa ekki nauðsynlega á slíkum upplýsingum að halda vegna starfa sinna eða stöðu. Slíkar upplýsingar skulu eftir atvikum geymdar í læstum hirslum eða vistuð í gagnagrunnum þar sem eingöngu aðilar sem slíkar upplýsingar eru viðkomandi hafa aðgang. Gætt skal sérstaklega að aðskilnaði starfssviða við meðferð innherjaupplýsinga.
e) Þess skal gætt að trúnaðar- eða innherjaupplýsingar liggi ekki á borðum í lok vinnudags eða þannig sé frá þeim gengið að óviðkomandi komist í þær. Þá skal þess ávallt gætt að aðgangur að tölvum í lok vinnudags sé læstur með fullnægjandi hætti. Sama gildir ef starfsmaður yfirgefur tölvu sína eða gögn til lengri tíma á vinnutíma.
f) Fjölföldun gagna er innihalda trúnaðar- eða innherjaupplýsingar skal haldið í lágmarki. Sá sem sendir trúnaðar- eða innherjaupplýsingar skal gæta þess að þær berist aðeins ætluðum viðtakanda.
g) Starfsmaður sem á erindi inn á annað starfsvið en hann starfar á, skal gæta þess að hann komi sér ekki í þá aðstöðu að hafa aðgang að trúnaðar- eða innherjaupplýsingum er kunna að vera fyrir hendi á því sviði og eru honum óviðkomandi.
5.2. Aðgangi að rafrænum gögnum skal stjórnað með fullnægjandi öryggisráðstöfunum, t.d. með notkun lykilorða, rafrænna skilríkja og aðgangsskilgreiningu á gagnagrunnum. Séu lykilorð notuð til aðgangsstýringar skulu þau vera nægjanlega flókin og aðgangsstýring þannig úr garði gerð að ekki sé unnt að komast að þeim með síendurteknum ágiskunum (e. brut force attack). Starfsmönnum er óheimilt að skrifa slík lykilorð niður, hvort sem er á blað eða í tölvuskrá. Einungis þeim starfsmönnum sem nauðsynlega þurfa aðgang að rafrænum gögnum skal veittur aðgangur.
5.3. Öll frumgögn skulu vistuð í eldtraustum skáp hjá skjalaverði sem ber ábyrgð á vistun skjala og veitingu aðgangs að skjalaskáp. Frumgögn skulu að jafnaði ekki afhent úr skalaskáp, en sé slíkt gert skal skrá slíka afhendingu.
5.4. Aðgangur utanaðkomandi aðila að öllum sviðum Saga Capital skal takmarkaður. Þá skal aðgangur starfsmanna á milli sviða þar sem um er að ræða aðskilnað hvað varðar upplýsingaflæði takmarkaður. Aðgangur skal takmarkaður með fullnægjandi afmörkun viðkomandi húsrýmis.
6. Eigin viðskipti Saga Capital
6.1. Viðskipti Saga Capital með verðbréf fyrir eigin reikning og eigin viðskipti stjórnarmanna og starfsmanna skulu á engan hátt rekast á við hagsmuni viðskiptamanna. Saga Capital, stjórnarmenn og starfsmenn skulu forðast að haga viðskiptum sínum þannig að þau gefi tilefni til að ætla að þau rekist á við hagsmuni viðskiptavina.
6.2. Óheimilt er að láta eigin viðskipti Saga Capital, viðskipti stjórnarmanna, eigenda virkra eignarhluta, eða starfsmanna ganga fyrir viðskiptafyrirmælum viðskiptavina.
6.3. Þegar um eigin viðskipti Saga Capital er að ræða og Saga Capital sér um miðlun viðskiptanna skal þess getið á viðskiptanótu að Saga Capital sé mótaðili í umræddum viðskiptin.
6.4. Við ráðgjöf um viðskipti með verðbréf skal gera viðskiptavini grein fyrir því ef Saga Capital hefur hagsmuna að gæta í viðkomandi félagi, enda séu um það aðgengilegar starfsmanninum. Ekki er þó nauðsynlegt að gera viðskiptavini grein fyrir slíkum hagsmunum sé eignarhlutur Saga Capital óverulegur eða þeir hafi óverulega fjárhagslega þýðingu fyrir Saga Capital.
6.5. Við greiningu Saga Capital á einstökum félögum sem birtar eru opinberlega skal geta þess ef Saga Capital hefur hagsmuna að gæta í viðkomandi félagi, enda séu upplýsingar um það aðgengilegar þeim starfsmanni/starfsmönnum er útbúa slíka greiningu. Ekki er þó nauðsynlegt að gera grein fyrir slíkum hagsmunum ef þeir hafa óverulega fjárhagslega þýðingu fyrir félagið, t.d. ef eignarhlutur eða útlánahagsmunir í félagi er óverulegir.
7. Verðbréfaviðskipti starfsmanna
7.1. Samþykki regluvarðar
Starfsmenn skulu tilkynna regluverði skriflega eða með tölvupósti um fyrirhuguð viðskipti sem falla undir reglur þessar. Starfsmanni er óheimilt að eiga viðskipti nema regluvörður veiti samþykki sitt fyrir viðskiptunum. Fari viðskipti ekki fram þann dag sem regluvörður hefur samþykkt, fellur samþykki hans niður.
Regluvörður hefur heimild til að óska eftir því að viðskipti starfsmanns verði bakfærð, telji hann að þau hafi ekki átt að eiga sér stað.Í slíkum tilvikum skal bakfærsla viðskipta eiga sér stað ef kostur er.
Þrátt fyrir að regluvörður taki afstöðu til viðskipta, þá eru þau alfarið á ábyrgð viðkomandi starfsmanns.
7.2. Afgreiðsla og skráning viðskipta
Með þeim undantekningum sem í reglum þessum greinir skulu öll viðskipti starfsmanna Saga Capital fara fram fyrir milligöngu Saga Capital. Starfsmönnum er óheimilt að annast sjálfir viðskipti sín eða aðila sem eru þeim tengdir og falla undir reglur þessar. Viðskipti skulu fara fram með þeim hætti að starfsmaður, sendir bréf eða tölvupóst með ósk um afgreiðslu viðskiptanna ásamt samþykki regluvarðar fyrir þeim til starfsmanns Saga Capital, sem hefur verið fyrirfram skilgreindur til þess að annast viðskipti starfsmanna. Sá aðili sér um að framkvæma viðskiptin og koma viðeigandi gögnum til þess aðila innan Saga Capital sem annast uppgjör viðskiptanna. Öll gögn um afgreiðslu og uppgjör viðskiptanna skulu send regluverði um leið og þau eru tilbúin og skal regluvörður útbúa sérstaka skrá um þau.
Starfsmönnum er óheimilt að eiga viðskipti á undan viðskiptamanni ef áður hefur legið fyrir beiðni um viðskipti af hans hálfu.
Ef Saga Capital fær beiðni um að kaupa eða selja verðbréf yfir ákveðið tímabil geta starfsmenn sem um það er kunnugt ekki átt viðskipti fyrir eigin reikning með viðkomandi verðbréf.
Þrátt fyrir ákvæði greinar þessar er starfsmönnum heimilt að eiga viðskipti með erlend verðbréf þar sem milliganga Saga Capital er ekki möguleg án verulegs viðbótarkostnaðar, viðskipti með fjármálagerninga á netinu eða reglulegan sparnað t.d. áskrift að verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum. Þá er stjórn Saga Capital heimilt að veita undanþágu frá milligöngu félagsins ef sérstakar ástæður eiga við og Fjármálaeftirlitið leggst ekki gegn því að slík undanþága verði veitt.
Í þeim tilvikum sem undanþágur frá milligöngu Saga Capital eru veittar samkvæmt reglum þessum skal tilkynna um slík viðskipti til regluvarðar.
7.3. Útboð er Saga Capital tekur þátt í
Starfsmönnum er óheimilt að eiga viðskipti í útboðum á verðbréfum þegar Saga Capital er útgefandi verðbréfanna, umsjónaraðili með útboðinu eða tekur þátt í því þannig að innan félagsins liggi upplýsingar um útboðið sem ekki eru opinberar, nema eftirfarandi eigi við:
a) Um sé að ræða almennt útboð þar sem óskað er eftir tilboðum á föstu gengi en ekki er óskað eftir tilboðum í verð einstakra bréfa, gengi eða vaxtakjör, og þeir njóta ekki forgangs sem fyrstir skrá sig. Við þessar aðstæður verða tilboð starfsmanna að berast við upphaf fyrsta tilboðsdags og skal greina frá heimild starfsmanna til þátttöku í útboðslýsingu.
b) Starfsmönnum er heimilt að nýta sér forkaupsrétt sinn vegna eldri verðbréfaeignar, enda sé verðbréfaeignin til komin áður en vinna Saga Capital við viðkomandi útboð hófst eða starfsmaður hefur eignast bréfin sem gjöf, arf eða sem greiðslu fyrir fastafjármuni.
7.4. Skráð og óskráð verðbréf
Starfsmönnum Saga Capital er óheimilt að eiga viðskipti með óskráð verðbréf, með eftirfarandi undantekningum þó:
a) Heimilt er að eiga viðskipti með verðbréf sem seld eru í almennu útboði sem er undanfari skráningar bréfanna á skipulegum verðbréfamarkaði.
b) Maka starfsmanns sem stundar atvinnurekstur er heimilt að eiga viðskipti sem tengjast atvinnurekstrinum, enda hafi regluverði verið gerð grein fyrir eðli atvinnurekstrarins.
c) Heimilt er að eiga viðskipti með hlutdeildarskírteini og hlutabréf verðbréfa- eða fjárfestingarsjóða sem lúta opinberu eftirliti.
d) Heimilt er að framselja verðbréf sem starfsmenn hafa fengið fyrir gjöf, arf eða sölu fjármuna sinna eða þeir hafa eignast áður en þeir hófu störf hjá Saga Capital. Er þeim og heimilt að taka þátt í aukningu hlutafjár eða nýta sér forkaupsrétt í óskráðum félögum sem þeir eiga í á grundvelli framangreinds.
e) Heimilt er að fjárfesta í hlutabréfum félaga sem ekki eru virk viðskipti með og ekki hafa fjárfestingar að markmiði, t.d. félögum um góðgerðarstarfsemi, íþróttafélög og félög um atvinnurekstur fjölskyldumeðlima.
f) Heimilt er að eiga viðskipti með hlutabréf í Saga Capital Fjárfestingarbanka hf., m.a. á grundvelli valréttarsamninga við starfsmenn og/eða við aukningu hlutafjár í félaginu.
g) Þá er stjórn Saga Capital heimilt að veita undanþágu um viðskipti með óskráð bréf ef sérstakar ástæður eiga við og Fjármálaeftirlitið leggst ekki gegn því að slík undanþága verði veitt.
Um viðskipti sem eiga sér stað samkvæmt þessari grein skulu gilda sömu reglur og eiga við um skráð verðbréf svo sem um feril viðskipta, skráningu o.fl.
7.5. Lágmarks eignarhaldstími
Verðbréf sem starfsmaður hefur eignast og falla undir ákvæði reglna þessara, skal hann eiga í að lágmarki þrjá mánuði frá kaupdegi. Starfsmanni eru þó heimilt að selja verðbréfin innan þessarar tímamarka í eftirfarandi tilvikum:
a) Til að verja sig tapi í viðskiptum með verðbréf, enda sé verð bréfanna orðið jafnt eða lægra en upphaflegt kaupverð.
b) Ef um er að ræða fjármálagerninga sem skráðir eru á skipulegum verðbréfamarkaði erlendis sem hefur virka verðmyndun og viðkomandi fjármálagerningar hafa mikla veltu á mælikvarða þess markaðar (t.d. S&P 500 eða FTSE 100).
c) Ef um er að ræða hluti í verðbréfa- eða fjárfestingarsjóðum sem lúta opinberu eftirliti eða skráða hluti í fjárfestingarfélögum.
d) Ef um er að ræða verðbréf sem starfsmaður hefur eignast fyrir gjöf, arf eða sem greiðslu fyrir sölu fjármuna sinna.
e) Ef um er að ræða verðbréf sem starfsmaður hefur eignast áður en reglur þessar taka gildi gagnvart honum.
f) Ef um er að ræða viðskipti starfsmanna Saga Capital, með hlutabréf sem félagið hefur gefið út, og viðskiptin eru í samræmi við ákvæði laga og reglna um viðskipti innherja og meðferð innherjaupplýsinga.
Regluverði er jafnframt heimilt að veita undanþágu frá lágmarkseignarhaldstíma vegna sérstakra aðstæðna, fyrst og fremst vegna óvæntra breytinga á aðstæðum starfsmanns eftir að verðbréfin voru keypt, svo sem veikinda, slyss, andláts í fjölskyldunni eða hjónaskilnaðar.
7.6. Fjárfestingarfélög
Starfsmönnum er ekki heimilt að taka þátt í fjárfestingarhópum (klúbbum) eða öðrum hliðstæðum félagsskap sem hefur þann tilgang að þátttakendur standi sameiginlega að kaupum á verðbréfum. Hér er þó ekki átt við kaup í verðbréfasjóðum, fjárfestingarsjóðum eða fjárfestingarfélögum er lúta opinberu eftirliti og hluthafar hafa ekki bein áhrif á val fjárfestinga.
7.7. Ráðgjafar og trúnaðarmenn
Þeim starfsmönnum sem í störfum sínum eru faglegir ráðgjafar eða trúnaðarmenn útgefanda verðbréfa, og hafa vegna þeirra starfa sinna aðgang að innherjaupplýsingum um viðkomandi útgefanda, er óheimilt að eiga viðskipti fyrir eigin reikning með verðbréf viðkomandi útgefenda frá því að störfin hefjast og í næstu þrjá mánuði frá því að þeim lýkur. Starfsmanni er þó heimilt að eiga viðskipti innan þeirra tímamarka, hafi vinnu fyrir viðkomandi útgefanda lokið með útgáfu útboðs- eða skráningarlýsingar þar sem innherjaupplýsingar þær er starfsmaðurinn hefur fengið aðgang að eru gerðar opinberar.
7.8. Innri greining Saga Capital
Starfsmönnum er óheimilt að nýta sér innri greiningu sem unnin er á vegum Saga Capital í þeim tilgangi að hagnast persónulega í verðbréfaviðskiptum, ef niðurstöður greiningar eru öðrum viðskiptamönnum ekki aðgengilegar
7.9. Tilkynning við upphaf starfa
Starfsmenn skulu greina regluverði frá allri verðbréfaeign þegar þeir hefja störf hjá Saga Capital og hvenær sem er á starfstíma sínum fyrir félagið sé eftir því óskað af hálfu Saga Capital.
8. Viðskipti starfsmanna við Saga Capital
8.1. Saga Capital er heimilt að veita starfsmönnum sínum afslætti vegna viðskipta samkvæmt gjaldskrá og hagstæðari vaxtakjör vegna lána til kaupa á verðbréfum. Slík sérkjör skulu ákveðin fyrirfram af forstjóra Saga Capital.
8.2. Hafi starfsmenn Saga Capital með öðrum hætti en greinir í 8.1. notið betri kjara í verðbréfaviðskiptum sínum en almennt giltu á verðbréfamarkaði um sambærileg verðbréf á þeim tíma sem viðskipti áttu sér stað, skal regluvörður þegar í stað leiðrétta umrædd viðskipti eða láta færa þau til baka. Er starfsmönnum Saga Capital í þessu tilviki skylt að una því að viðskipti séu látin ganga til baka sé þess krafist.
8.3. Samningar Saga Capital um lán, ábyrgðir, kauprétt eða sambærileg viðskipti við framkvæmdastjóra og maka hans er háður samþykki stjórnar. Ákvörðun um slíkt skal bókuð.
9. Viðskipti stjórnarmanna og aðila sem eiga virkan eignarhlut
9.1. Saga Capital skal gæta þess í viðskiptum við stjórnarmenn og aðila sem eiga virkan eignarhlut í félaginu að þau séu ekki á nokkurn hátt tortryggileg eða til þess fallin að kasta rýrð á trúverðugleika og orðstír þeirra eða Saga Capital.
Óskir ofangreindra aðila um viðskipti skulu afgreiddar með sama hætti og óskir annarra viðskiptavina og ekki fá forgang á nokkurn hátt. Slík viðskipti skulu skráð af regluverði með sama hætti og viðskipti starfsmanna. Sama gildir um endurskoðendur félagsins og eftir atvikum fasta ráðgjafa.
10. Stjórnarseta og önnur störf utan Saga Capital
10.1. Starfsmönnum Saga Capital er óheimilt að sitja í stjórn atvinnufyrirtækja, taka laun frá öðru fyrirtæki eða taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti nema með leyfi forstjóra. Starfsmönnum Saga Capital er þó heimilt að starfa fyrir og sitja í stjórnum dótturfélaga Saga Capital og tengdra félaga. Eignarhlutur í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri, nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki veitir bein áhrif á stjórnun þess.
Forstjóri Saga Capital skal aðeins veita starfsmanni leyfi skv. 1. mgr. ef ekki er talin hætta á hagsmunaárekstrum. Forstjóri skal kynna stjórn eigi sjaldnar en árlega um ákvarðanir samkvæmt grein þessari.
Telji forstjóri brýna ástæðu til, er honum heimilt að afturkalla veitt leyfi samkvæmt ofangreindu. Tekur afturköllunin gildi þegar hún hefur verið send starfsmanni með sannanlegum hætti. Er viðkomandi starfsmanni þá skylt að segja sig úr stjórn eða hætta þátttöku í viðkomandi atvinnurekstri innan sex mánaða frá því að afturköllun leyfis tók gildi. Forstjóri getur kveðið á um styttri frest sé það nauðsynlegt vegna hagsmuna Saga Capital.
10.2. Starfsmönnum er heimilt, þrátt fyrir ákvæði 10.1., að sitja í stjórnum félaga samkvæmt ákvæði 2.5. Starfsmenn skulu tilkynna regluverði um eignarhlut sinn og stjórnarsetu í slíkum félögum.
10.3. Forstjóri skal almennt ekki sitja í stjórn atvinnufyrirtækja og taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti, nema lög kveði á um annað eða um sé að ræða atvinnufyrirtæki sem Saga Capital á aðild að. Þó getur stjórn veitt forstjóra heimild til setu í stjórn atvinnufyrirtækja eða til að taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti ef hún telur það samrýmanlegt hagsmunum Saga Capital. Stjórn getur afturkallað slíkt leyfi til forstjóra og fer um slíka afturköllun samkvæmt ákvæði 3. mgr. 10.1.
10.4. Regluvörður Saga Capital skal halda skrá um þá starfsmenn sem fengið hafa leyfi til stjórnarsetu eða þátttöku í atvinnurekstri. Skal skráin hafa að geyma nöfn viðkomandi starfsmanna, upplýsingar um hvenær leyfi var veitt og vegna hvaða fyrirtækis.
Hætti starfsmaður í stjórn fyrirtækis eða þátttöku í atvinnurekstri skal hann tilkynna regluverði um slíkt. Skal regluvörður við móttöku slíkrar tilkynningar taka viðkomandi af skrá skv. ofangreindu og við það fellur leyfi viðkomandi starfsmanns niður.
10.5. Starfsmönnum er óheimilt að hafa með höndum aukastörf. Þó er stjórn og forstjóra heimilt að veita heimild til slíks enda telji þeir það samrýmanlegt stöðu viðkomandi starfsmanns.
10.6. Ákvæði þessa kafla takmarka á engan hátt atvinnufrelsi maka starfsmanna.
10.7. Um heimild stjórnarmanna til setu í stjórnum tengdra félaga fer samkvæmt sérstökum reglum þar að lútandi settum á grundvelli 2. mgr. 54. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
11. Regluvörður og eftirlit með framkvæmd reglnanna
11.1. Innan Saga Capital skal starfa regluvörður sem skal tilnefndur af stjórn. Þess skal gætt að staða regluvarðar í skipuriti Saga Capital tryggi honum sjálfstæði í störfum gagnvart þeim sviðum innan félagsins sem eftirlit hans lýtur að. Einnig skal tilnefna staðgengil regluverðar, sem unnt er að leita til ef ekki reynist unnt að ná til regluvarðar. Starf regluvarðar lýtur eftirliti innri endurskoðunar Saga Capital, en framkvæmdastjóri áhættustýringar skal taka afstöðu til verðbréfaviðskipta regluvarðar.
11.2. Regluvörður hefur eftirfarandi hlutverk innan Saga Capital:
a) Hafa eftirlit með því að ákvæðum þessara reglna sé fylgt, þar með talið reglum um viðskipti starfsmanna, þátttöku starfsmanna í atvinnurekstri, aðskilnað starfssviða og viðskipti Saga Capital fyrir eigin reikning.
b) Halda skrá um viðskipti starfsmanna á grundvelli reglna þessara og undanþágur sem veittar hafa verið frá þeim.
c) Hafa forgöngu um túlkun reglnanna og taka ákvarðanir samkvæmt efni þeirra.
d) Annast kynningu á reglunum innan Saga Capital.
e) Halda skrá yfir starfsmenn sem starfa á milli starfssviða sem eru aðskilin.
f) Taka við kvörtunum frá viðskiptavinum um meint brot á reglum þessum og beina þeim í réttan farveg. Halda skal skrá um kvartanir.
g) Önnur verkefni sem honum eru sérstaklega falin.
11.3. Regluvörður skal hafa aðgang að öllum þeim upplýsingum innan Saga Capital sem eru nauðsynlegar vegna starfs hans. Starfsmönnum er skylt að veita honum allar þær upplýsingar sem hann óskar eftir svo fljótt sem unnt er.
11.4. Regluvörður hefur vald til að banna viðskipti tiltekinna starfsmanna með ákveðin verðbréf án sérstakra skýringa eða tímamarka. Þá er regluverði heimilt að banna tímabundið viðskipti sem tengjast innri greiningu fyrirtækis sem ekki er aðgengileg öðrum viðskiptamönnum.
11.5. Regluvörður skal hafa eftirlit með viðskipti starfsmanna með verðbréf þar sem Saga Capital eða aðilar tengdir Saga Capital eiga hagsmuna að gæta.
11.6. Regluvörður skal mánaðarlega gera yfirlit um viðskipti starfsmanna samkvæmt reglum þessum sem skal m.a. innihalda upplýsingar um kaup og sölu verðbréfa, kaupverð/söluverð, tímamark viðskipta, hver annaðist viðskiptin og hver sé gagnaðili í viðskiptunum. Framkvæmdastjóri skal fara yfir yfirlitið og staðfesta það sérstaklega.
11.7. Starfsmönnum er skylt að tilkynna regluverði ef hjá þeim vaknar grunur um að reglur þessar hafi verið brotnar.
12. Yfirlýsing starfsmanns
12.1. Starfsmenn skulu undirrita yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér og maka sínum reglur þessar og skuldbindi sig til að hlíta þeim, sbr. fylgiskjal A. Starfi maki hjá öðru fjármálafyrirtæki og hafi hann undirritað sambærilega yfirlýsingu vegna reglna sem gilda um viðskipti starfsmanna þess og staðfestar hafa verið af Fjármálaeftirlitinu, skulu ákvæði þeirra reglna gilda um viðskipti viðkomandi maka.
13. Viðurlög o.fl.
13.1. Brot gegn reglum þessum geta varðað áminningu, brottvikningu úr starfi og/eða refsingu samkvæmt lögum. Viðskipti sem brjóta gegn reglum þessum skulu að kröfu bankans ganga til baka ef unnt er, en annars skal leitast við að gera hagnað upptækan þannig að hann renni til bankans.
13.2. Að öðru leyti en því sem greinir í reglum þessum gilda ákvæði laga nr. 108/2007, með síðari breytingum, um viðskipti þeirra sem reglurnar taka til.
13.3. Regluvörður skal tilkynna brot á reglum þessum til stjórnar Saga Capital. Stjórn, eða eftir atvikum forstjóri í umboði stjórnar, skal senda upplýsingar um tilkynnt brot til Fjármálaeftirlitsins.
13.4. Reglur þessar öðlast gildi við undirritun stjórnar Saga Capital.
13.5. Þess skal gætt að reglur þessar séu aðgengilegar viðskiptavinum Saga Capital.
Akureyri 8. júní 2009
Stjórn Saga Capital Fjárfestingarbanka hf.