Upphaf viðskipta hjá Saga Capital
Ný heildarlöggjöf um verðbréfaviðskipti tók gildi 1. nóvember, 2007 og er markmið laganna að samræma regluverk um fjárfestingarþjónustu á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og auka enn á neytendavernd fjárfesta. Eins og áður, þurfa allir þeir sem vilja eiga viðskipti með verðbréf að samþykkja skilmála viðkomandi fjármálastofnunnar og útfylla nokkur skjöl áður en af viðskiptum getur orðið. Við bætist svo að fjármálafyrirtækin þurfa nú að flokka viðskiptavini sína að teknu tilliti til þekkingar þeirra og reynslu.
Til að uppfylla skilyrði laganna þurfa viðskiptavinir Saga Capital að taka nokkur skref áður en viðskipti hefjast.
- Í fyrsta lagi þurfa viðskiptavinir að lesa og samþykkja almenna skilmála Saga Capital (sjá skjal 1 hér fyrir neðan) og ef við á,
fylla út umboð fyrir þann sem kemur til með að vera í samskiptum við Saga Capital um viðskiptin (skjal 13).
- Í öðru lagi þurfa viðskiptavinir að fylla út og skila svokölluðum peningaþvættiseyðublöðum (mismunandi eyðublöð
eftir því hvort viðskiptavinir eru einstaklingar eða lögaðilar, íslenskir eða erlendir, skjöl 2, 3 og 4) og skila þeim gögnum sem
eyðublöðin kveða á um.
- Að lokum þarf Saga Capital að flokka viðskiptavini sína sem almenna fjárfesta, fagfjárfesta eða viðurkennda gagnaðila. Þeir sem eru flokkaðir sem almennir fjárfestar eða fagfjárfestar þurfa að lesa og samþykkja stefnu Saga Capital um bestu framkvæmd en það eru verklagsreglur bankans sem fjalla um það hvernig Saga Capital hyggst tryggja viðskiptavinum hagstæðustu niðurstöðu viðskiptanna (skjal 8). Allir fjárfestar þurfa síðan að skrifa undir samþykkiseyðublað fyrir framkvæmd viðskipta utan skipulagðra markaða (mismunandi eyðublöð eftir því hvort viðskiptavinur er almennur fjárfestir, fagfjárfestir eða viðurkenndur gagnaðili, skjöl 6 og 7). Ítarlegri upplýsingar um flokkun viðskiptavina er að finna í skjali 5.
Vinsamlegast athugið að frekari leiðbeiningar vegna upphaf viðskipta hjá Saga Capital er að finna í gátlistanum hér að neðan (skjal 15).
Upplýsingar og aðstoð um þessi mál veitir Hildigunnur Rut Jónsdóttir hjá Saga Capital í síma 545-2623 eða um tölvupóst
á netfangið rut hjá sagacapital.is.
Upplýsingar og eyðublöð
1. Almennir skilmálar Saga Capital
2. Peningaþvætti. Eyðublað fyrir einstaklinga
3. Peningaþvætti. Eyðublað fyrir lögaðila
4. Peningaþvætti. Eyðublað fyrir
fjármálafyrirtæki
5. Upplýsingar um flokkun viðskiptavina
6. Samþykkiseyðublað fyrir almenna fjárfesta og
fagfjárfesta
7. Samþykkiseyðublað fyrir viðurkennda gagnaðila
8. Stefna Saga Capital um bestu framkvæmd
9. Yfirlit yfir fjármálagerninga og áhættur
10. Upplýsingarit Fjármálaeftirlitsins um MiFID
11. Yfirlýsing vegna viðskipta á Saga Market
12. Gjaldskrá markaðsviðskipta
13. Umboð fyrir Saga Capital
14. Sýnishorn
umboðs fyrir Saga Capital
15. Gátlisti fyrir viðskiptavini