Saga Capital Fjárfestingabanki hf. starfar á tíu sviðum. Tekjusvið bankans eru fimm: Eigin viðskipti, Fjárstýring,
Fyrirtækjaráðgjöf, Markaðsviðskipti og Útlánasvið. Stoðsvið bankans eru fimm: Áhættustýring,
Fjármálasvið, Lögfræðisvið, Samskiptasvið og Uppgjörssvið.
Áhættustýring
Áhættustýring greinir, mælir, fylgist með og stýrir allri áhættu í starfsemi bankans og vinnur náið með öðrum
sviðum að því markmiði. Áhættustýring sinnir reglulegri skýrslugjöf til stjórnar og forstjóra, ásamt reglubundnum
skýrsluskilum til opinberra eftirlitsaðila og ráðgjöf til viðskiptavina bankans.
Eigin viðskipti
Eigin viðskipti annast stýringu á fjárfestingum Saga Capital með þátttöku á innlendum og erlendum
verðbréfamörkuðum. Fjárfestingar bankans eru ýmist í hlutabréfum, skuldabréfum eða afleiðum. Eigin viðskipti stunda jafnframt
viðskiptavakt með ýmsa flokka verðbréfa.
Fjármálasvið
Fjármálasvið Saga Capital annast uppgjör allra sviða bankans sem og heildaruppgjör félagsins og áætlanagerð. Starfsfólk
fjármálasviðs vinnur jafnframt ársfjórðungsuppgjör og annast bókhaldslega skýrslugerð til yfirstjórnar. Ennfremur sinnir
fjármálasvið samskiptum við Seðlabanka og gætir þess að rekstur, bókhald og eftirlit sé í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
Fjárstýring
Fjárstýring Saga Capital annast fjármögnun bankans á innlendum og erlendum mörkuðum. Þar með eru taldar lántökur á
íslenskum peninga- og skuldabréfamarkaði, alþjóðlegum peningamarkaði og skuldabréfamarkaði og alþjóðlegum
sambankalánamarkaði. Að auki annast sviðið hefðbundna lausafjárstýringu bankans.
Fyrirtækjaráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital veitir fyrirtækjum, eignarhaldsfélögum og öðrum fagfjárfestum ráðgjöf um kaup, sölu,
samruna og yfirtöku fyrirtækja og rekstrareininga. Meðal þjónustuþátta sem Saga Capital býður í tengslum við sölu og kaup á
félögum og fyrirtækjum má nefna: Útboð og skráningu verðbréfa, umsjón með áreiðanleikakönnunum, samruni og
yfirtökur, aðstoð í tengslum við breytingar á eignarhaldi og þátttaka í samningaviðræðum og samningagerð.
Lögfræðisvið
Lögfræðisvið veitir yfirstjórn Saga Capital, sem og tekju- og stoðsviðum bankans, lögfræðilega ráðgjöf og þjónustu.
Lögfræðisvið sér um að starfsemi bankans sé hverju sinni í samræmi við gildandi lög og reglur og hefur samráð við
eftirlitsaðila um einstök lögfræðileg álitamál sem upp geta komið í starfsemi bankans. Sviðið annast einnig samstarf við yfirvöld
í þeim tilgangi að koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Lögfræðisvið gætir hagsmuna bankans fyrir
dómstólum og gagnvart yfirvöldum.
Markaðsviðskipti
Markaðsviðskipti Saga Capital annast miðlun verðbréfa fyrir fyrirtæki, fjárfestingarsjóði, verðbréfasjóði,
lífeyrissjóið og fjársterka einstaklinga. Saga Capital er aðili að öllum kauphöllum á Norðurlöndunum og veitir viðskiptavinum
sínum þjónustu og aðgang að helstu verðbréfamörkuðum heims.
Samskiptasvið
Saga Capital leggur áherslu á öfluga upplýsingagjöf og samskipti við fjárfesta. Samskiptasvið sér um fjárfestatengsl fyrirtækisins,
samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila, hefur yfirumsjón með markaðs- og ímyndarmálum bankans og heldur utan um allt upplýsingaflæði,
bæði innan fyrirtækis sem utan. Starfsmenn samskiptasviðs svara einnig öllum fyrirspurnum fjölmiðla.
Uppgjörssvið
Uppgjörssvið Saga Capital er eitt af stoðsviðum bankans og skiptist í þrjár deildir, uppgjör viðskipta (Clearing and Settlement),
fyrirtækjaaðgerðir (Corporate Actions) og vörsluþjónustu (Safekeeping Services). Uppgjörsdeildin sér um afgreiðslu og frágang
verðbréfaviðskipta, rafrænna og órafrænna verðbréfa, bæði fyrir eigin viðskipti Saga Capital og fyrir viðskiptavini.
Fyrirtækjaaðgerðir sjá um afgreiðslu og utanumhald allra fyrirtækjaaðgerða. Vörsluþjónustudeildin sér um öll almenn verkefni sem
snúa að vörslu verðbréfa svo sem afstemmingar, stofnupplýsingar og útsendingar staðfestinga og yfirlita.
Útlánasvið
Útlánasvið Saga Capital annast útlán til fyrirtækja og stofnanafjárfesta. Í boði eru fjölbreytt lánsform þar sem leitast er
við að uppfylla fjölbreyttar þarfir viðskiptavinarins. Helstu lánaform Saga Capital eru: Hefðbundin skuldabréfalán til lengri eða skemmri
tíma; Skammtímafjármögnun; Lánasamningar; Brúarfjármögnun; Verðbréfafjármögnun; Verkefnafjármögnun; og
Sambankalán.
Efst á síðu